Blogg
17.1.2008
8 ára afmæli
Aníta Björk afmælisskvísa að stilla sér upp fyrir ljósmyndarann
(september 2007)
Afmæliskvöldverðurinn verður svo snæddur á Jensens Bøfhus, að ósk afmælisbarnsins og er hún ekki síst búin að bíða eftir þeim merka viðburði, en henni þykir ákaflega gaman að fara þangað að borða.
Jæja, ætla að koma mér í háttinn svo að ég geti notið afmælisdagsins með afmælisbarninu...
Kv. Beggan
7.1.2008
GLEÐILEGT NÝTT ÁR!!!
Í dag er víst 9. dagur ársins 2008 og kannski tímabært að leika sér að því að rifja upp atburði gamla ársins, þ.e. ársins 2007. Ég ætla nú bara að impra "aðeins" á því sem á daga okkar dreif svo að þetta verði nú ekki allt of yfirþyrmandi. (varð nú kannski ívið lengra en ég hafði reiknað með
)
Í janúar heilsaði nýja árið okkur með því að Stebbi fór í lokatörnina í lokaverkefninu sínu, skilaði því og fór svo í próf úr því og náði svo að útskrifast ásamt félaga okkar honum Ingólfi. Af því tilefni var haldinn hin ágætasta veisla með miklu fjöri og mörgum góðum gestum. Við fengum til okkar frá Íslandi þau Stínu, Eygló Rún OKKAR, Arnar Elí & Lilju og frá Þýskalandi komu þau Júlli, Rike & Palli litli. Stína sá náttúrulega um veg og vanda að þessari veislu, eins og henni er einni lagið
Nú svo er nú alltaf skemmtilegt hjá okkur þegar 17. þessa mánaðar lítur dagsins ljós, því að þá fær hún Aníta Björk extra mikið af knúsum og kossum og jafnvel einhverja pakka líka í tilefni afmælisdagsins og í fyrra varð hún 7 ára þessi "litla" pæja og það þýðir líka það að það er orðið verlulega stutt í að hún verði 8 ára þessi elska.
Febrúar bar líka með sér afmælisdag í fjölskyldunni, en þá varð nú frumburðurinn 10 ára og þótti mömmunni það nú ansi merkilegur áfangi að vera búin að vera móðir í heil 10 ár. Auðvitað fékk hún, Perla Dögg, líka extra mikið af knúsum og kossum þennan dag frá okkur öllum.
Þorrablótið var á sínum stað að venju, hressilegt og skemmtilegt og fengum við til okkar frábæra barnapíu, en það var hún Gullan okkar í Köben sem lét til leiðast að koma til okkar til að passa ungana og þar á meðal litla guttann sem enn var á brjósti á þessum tíma. Nú það hittist svo á að hún átti afmæli hjá okkur (11. feb.) og bökuðum við því bolludagsbollur af því tilefni og nutum þess að fá að hafa hana hjá okkur.
Í mars var Stebbi ráðinn hjá JF-Stoll sem tæknifræðingur og átti að byrja 1. apríl í þeirri stöðu.
Apríl var nokkuð annasamur hjá okkur fjölskyldunni, það voru náttúrulega páskar og við fengum til okkar gest, en það var hún Hrefna Sif systurdóttir mín sem kom og var hjá okkur. Okkur þótti sko mjög vænt um að hún skyldi vilja koma og eyða með okkur þessum tíma og fórum við frænkur meira að segja út að hlaupa saman í góða veðrinu í Sønderborg.
Við skelltum okkur líka eina helgi til Kaufungen í Þýskalandi og eyddum henni með Júlla, Rike og Palla. Það var sko bara huggulegt með gönguferðum í hesthúsin og ýmsu fleiru.
Nú við byrjuðum bæði að vinna í apríl hjónin, Stebbi þann 2. og ég þann 16. og þurftum að nýðast á henni Gunnu vinkonu okkar með því að henda honum Knúti í pössun til hennar (svona er það bara Gunna mín að vera heimavinnandi), en án hennar veit ég ekki alveg hvernig við hefðum reddað þessum málum, hefðum nú kannski getað pantað eins og eina ömmu hingað út til okkar, það hefði nú kannski ekki verið svo vitlaust.
Síðast en ekki síst þá var þetta mánuðurinn sem HÚSIÐ var keypt
Í maí fengum við svo lyklana að húsinu (áttum alla vega ekki að fá þá fyrr en 1. maí, en ég fékk þá reyndar 30. apríl) og þá byrjaði púlið hjá okkur. Við rifum og rifum niður áður en hægt var að fara að byggja upp aftur svo að það hefur verið í nógu að snúast síðan þá og verður það víst eitthvað áfram.
Í þessum mánuði fór Stebbi líka í sína fyrstu vinnuferð til útlanda og skellti sér í nokkra daga til Frakklands og fékk þá náttúrulega kærkomna pásu frá húsaframkvæmdum 
Váááááá... ég var nú bara næstum því búin að gleyma því að í lok apríl og eitthvað fram í maí fórum við stöllurnar, ég og Hafdís á geðveikt skemmtilegt námskeið en það var kajaknámskeiðið góða, sem endaði með þvílíkum hasar í ólgusjó
en það var því miður ekki róið mikið umfram námskeiðið þetta sumarið, en stefnan er sett á eitthvað fleiri km. árið 2008, það á að vera RÓÐRARÁRIÐ okkar Hafdísar, var það ekki annars Hafdís???
Júní er náttúrulega aðal MÁNUÐURINN þar sem frúin á bænum bætti við sig enn einu árinu og varð hvorki meira né minna en 35 ára. Mamma & Óskar mættu til okkar galvösk og hjálpuðu okkur þvílíkt mikið þennan tæpa hálfa mánuð sem þau stoppuðu hjá okkur, ef það má kalla það að stoppa hjá okkur því að ég hef eiginlega áhyggjur af því að þau hafi farið alveg uppgefin til Íslands aftur
Magga Vera, Jón Halldór & Sóley Rún komu til okkar (á undan áætlun) og hjálpuðu okkur nú aldeilis í því að gera klárt fyrir innflutning, bara geggjað þó að tárin hafi trillað niður kinnarnar á litlu systur þegar stóra systir birtist nokkrum dögum "of snemma" til að geta hjálpað til.
Við fluttum svo inn þann 28. júní með hjálp góðra vina, en það er þvílíkt frábært hvað það er alltaf stór hópur fólks tilbúinn til að stökkva til að hjálpa til við flutninga, við íslendingarnir hérna í Sønderborg erum sko með sanni, ein stór og yndisleg "fjölskylda". En enn á nú eftir að halda teiti fyrir alla hjálparkokkana, það hlýtur að geta farið að gerast svona upp úr hvað á hverju (eins og sumir myndu segja).
Þegar við vorum núflutt inn og enn í fráflutningsþrifum niðri á Gr. Allé þá komu til okkar mæðgur frá Svíþjóð. Það voru þær Björg (systir Stebba) & Ása Valdís dóttir hennar. Þær hjálpuðu okkur nú heldur betur líka, Ása Valdís fékk barnapíuhlutverkið á meðan Björg fékk að koma með okkur í þrifin á Gr. Allé, gaman að koma í heimsókn til okkar eða þannig.
Eftir að við skiluðum af okkur íbúðinni þá mættu nú til okkar fleiri góðir gestir, en það voru engir aðrir en þau Jóna Bára & Siggi með sín 3 börn. Þau voru búin að vera í eina viku í sumarhúsi hérna í DK og gáfu sér svo tíma til að koma til okkar í tvær nætur.
Það var sko alveg stórkostlegt að fá alla þessa gesti í heimsókn, vildi að ég hefði haft meiri og betri tíma til að sinna þeim, en ef þeir leggja í það koma aftur þá skal ég sko sjá af meiri tíma handa þeim, ekki spurning.
Í júlí fór Perla Dögg "ein" til Íslands, auðvitað fór hún ekki alveg alein því að hún var svo heppin að fá leyfi til að verða samferða nágrönnum okkar frá Gr. Allé, þeim Möggu Lukku, Jóa & krökkunum þeirra. Hún var að vonum alsæl með dvölina þar, enda eyddi hún mestum tíma í sveitinni hjá frænku sinni og jafnöldru henni Herdísi Lindu. Þegar dvölinni lauk fékk hún fylgd af einmitt Herdísi Lindu, Halldóri (pabba Herdísar/bróður Stebba) og Inga Þór (bróður Stebba). Þau stoppuðu svo hjá okkur í nokkra daga og sátu þeir bræður sko ekki auðum höndum, enda ekki þeim líkt. Júlli, enn einn bróðirinn, kom einnig hingað til okkar svo að það var bara mikill og góður bræðrahittingur hérna.
Magga Vera, Jón Halldór & Sóley Rún komu svo aftur til okkar, en núna eftir að hafa eytt þremur vikum í velheppnaða Evrópureisu.
Pabbi & Lilja (kærastan hans pabba) komu til okkar líka og það var æðislegt. Þetta var í fyrsta skipti sem hún Lilja kom til okkar og vonum við svo sannarlega að þetta hafi ekki verið það síðasta. Þau voru iðin bæði tvö við að rótast í garðinum, mála glugga, skjóta upp panil og margt fleira. Nú svo málaði Lilja handa okkur tvö málverk og það er nú heldur betur frábært.
Í lok mánaðarins byrjaði Knútur svo hjá dagmömmu, það gekk sko bara alveg eins og í lygasögu að aðlaga barnið, enda hreinlega STÓRKOSTLEG dagmamma sem við fengum fyrir hann.
Ágúst bar svo með sér nokkra afmælisdaga og þar á meðal náði drengurinn okkar hann Knútur Heiðberg að verða 1ns árs (og samt bara nýfæddur). Við fögnuðum þeim áfanga bara í rólegheitum með gestunum okkar frá Svíþjóð (meðal annarra), en þá voru þau einmitt stödd hérna þau Björk Magnúsdóttir (systurdóttir Stebba) & Anis maðurinn hennar ásamt fjórum sonum sínum.
Stebbi varð svo 37 ára þann 9. ágúst og við hjónin áttum 10 ára brúðkaupsafmæli þann 16. ágúst.
Að öðru leiti einkenndist ágúst af því að það varð allt hálf tómlegt þegar allir gestirnir höfðu kvatt okkur og skilið okkur eftir 5 í stóra húsinu okkar.
Í byrjun september tókst henni Perlu Dögg handleggsbrjóta sig í afmælisveilsu hjá skólabróður sínum. Það þýddi það að hún varð að vera í fatla í 4 vikur, hún braut sig nefninlega svo nálægt öxlinni að það var ekki hægt að gipsa hana :-(
Svo var komið að mér að fara í "vinnuferð" til útlanda, en þá var farin afmælisferð til Dublin í tilefni þess að Sloth Møller varð 50 ára á árinu. Þetta var ívið of stutt ferð en mjög skemmtileg engu síður.
Í byrjun október losnaði Perla Dögg úr fatlanum eftir
4 langar vikur í honum og gat þá farið að þjálfa sig upp aftur og ekki veitti nú af því þar sem allir vöðvar í handleggnum og öxlinni voru orðnir ansi rýrir, en þar sem drottningin æfir nú sund þá kom þetta ótrúlega fljótt hjá henni.
Eina góða helgi í október fengum við svo gullmolana okkar þau Gullu & Gumma í heimsókn, en þau voru bæði í ljósmyndanámi í lýðháskólum hérna í DK. Þau voru alveg á sitthvorum staðnum, þ.e. Gummi rétt hjá Skive hérna á Jótlandi og Gulla í Köben. En við fjölskyldan kórónuðum nú þessa annars fínu helgi með því að veikjast á aðfaranótt sunnudagsins og vorum gjörsamlega ónýt og hriklega leiðinlegir gestgjafar þennan sunnudag.
Nóvember bar svo með sér smá fjölskyldufundi, því að við skelltum okkur til Kaupmannahafnar í helgarferð til að hitta Möggu Veru og fjölskyldu þar, þar á meðal voru líka Gummi (sonur Möggu Veru) og Gulla (sem er dóttir Siggu systir). Þetta var hrikalga skemmtilegt helgi þar sem farið var í jólatívolí og kíkt á strikið og í búðir og svo bara notið þess að vera til.
Desember var að venju þéttsetinn, það var jólasýning hjá ballerínunni okkar henni Anítu Björk, sem var mjög flott. Jólasundmót og innafélagsmót hjá Perlu Dögg, sem að venju stóð sig vel og kom vel klifjuð heim að móti loknu. Jólaundirbúningurinn gekk nú bara vel þó að síðasti jólaleiðangurinn okkar til Þýskalands hafi farið hálf illa hjá honum Stebba mínum, en hann var bara orðinn fárveikur greyið og hann /við sem áttum eftir að gera svo mikið fyrir jólin
Ekki þótti nú öllum allt jafn skemmtilegt í desember, en hún Anna Jóna vinkona hennar Anítu Bjarkar flutti ásamt mömmu sinni og bróður til Íslands fram á sumar. Aníta Björk saknar hennar mjög mikið og hlakkar sko geðveikt til að fá hana aftur til sín.
Jólin komu með allri sinni dýrð, þrátt fyrir veikindi bóndans og rykið sem gleymdist í einhverjum krókum og kimum. Maturinn var góður alla dagana og ekki var verra að suma dagana vorum við í virkilega góðra vina hóp og það er svoooooo ómetanlegt þegar maður er svona langt í burtu frá fjölskyldunni og vinunum á Íslandi.
Áramótunum eyddum við líka í mjög góðra vina hóp með góðum mat, flugeldum og fullt af fjöri.
Þá held ég bara að ég sé búin með þessa ræpu að sinni, er nú ekki viss um að nokkur nenni að lesa þetta til enda, en mér fannst alla vega gaman að skrifa þetta og rifja árið upp þó ekki væri nema fyrir mig sjálfa
Enn og aftur gleðilegt ár til ykkar allra,
Beggan

