Blogg
21.4.2008
Þá er komið að smá innleggi...
...á þetta bloggsvæði mitt...
Nú er nýliðin 3ja daga helgi, en síðasta föstudag var nefninlega "Store Bededag" hérna í Danmörku, sem er frídagur. Svo að helgin var ljúf og löng hjá okkur, með sólskini og huggulegheitum. Reyndar var Kári nú á sveimi með henni Sunnu og ég verð nú að segja að mér fannst hann nú aðeins of athyglissjúkur til að vera skemmtilegur að þessu sinni. En engu að síður var unnið í garðinum/bílastæðinu alla helgina, enda með stóran traktor í láni og ekki hægt að láta hann standa aðgerðalausan þegar nóg er að gera. Eitthvað finnst mér nú vera að koma mynd á flötina hérna fyrir neðan hús, en þar sem þolinmæði mín er af frekar skornum skammti þá finnst mér þetta nú taka töluvert lengri tíma en hún (þolinmæðin mín) ræður við. En þá er bara að taka upp jákvæðnipokann og grafa upp úr honum slatta og finna það út að þetta kemur allt saman með kalda vatninu, sem sagt í rólegheitum heheh...
Annars höfum við það nú bara fínt, alltaf nóg að gera alls staðar. Nú er Aníta Björk komin í sumarfrí í bæði "spring gymnastik" og handbolta og í næstu viku verður hún komin í sumarfrí í ballettinum líka. Veit ekki alveg hvað sundið verður lengi í viðbót hjá þeim systrum, en það væri nú alveg í lagi að halda því út skólaárið, finnst mér alla vega. Aníta Björk er að hugsa um að prófa að fara í fótbolta í sumar og hentar það eiginlega bara ágætlega þar sem það er stutt á útiæfingasvæðið hjá félaginu sem hún kemur til með að æfa hjá, mér finnst muna alvega gríðarlega mikið um það að þurfa ekki að skutla og sækja alla daga. Perla Dögg skellti sér í dansskóla hér í bæ fyrir u.þ.b. mánuði síðan og þykir það rosalega skemmtilegt. Það verður sýning þar um miðjan maí og ég hlakka mikið til að fara og sjá hvað hún er að læra þarna.
Knútsinn okkar er bara sprækur. Auðvitað með skrámur hingað og þangað eins og gengur og gerist hjá tæplega 2ja ára strákum sem eru að rannsaka heiminn. Hann er farinn að tala alveg helling og það bæði á íslensku og dönsku. Hann er mikill útiverukarl og þótti nú ekki leiðinlegt að hafa traktorinn í garðinum sínum um helgina. Nú er svo fyrsta sjónvarpsseríudellan og er það náttúrulega LATIBÆR sem tröllríður öllu hér á bæ um þessar mundir. Hann getur hreinlega steingleymt sér fyrir framan kassann og þegar hann er að biðja um að fá að horfa á Latabæ þá segir hann "bababæ".
Þetta verður að vera gott þangað til næst (hvenær sem það nú verður ;o) )
Knús í krús, Beggan
16.4.2008
Gat nú ekki annað en látið þennan flakka...
... stal honum einhvers staðar á netinu ;o)
Maður hringir í fyrirtæki og pantar hjá þeim
"misstu 5 kg á fimm dögum pakka"
Daginn eftir er barið á dyrnar hjá honum og fyrir utan stendur íturvaxin
19 ára snót... í engu nema nike hlaupaskóm.
Um hálsinn á henni hangir skilti, sem á stendur:
Ef þú nærð mér þá máttu eiga mig!!
Hann lætur ekki segja sér það tvisvar og stekkur á eftir henni.
Eftir nokkra kílómetra er hann orðinn móður og másandi og gefst upp.
Sama stúlkan mætir á þröskuldinn hjá honum næstu 4 daga..
og það sama gerist í hvert skipti. Á fimmta degi
vigtar félaginn sig og viti menn hann hefur misst 5 kíló.
Hæst ánægður með árangurinn hringir maðurinn aftur í fyrirtækið og
pantar misstu 10 kg á 5 dögum.
Næsta dag er bankað á dyrnar og fyrir utan stendur einhver sú fallegasta
og kynþokkafyllsta kona sem hann hefur á ævi sinni séð.
Hún er eingöngu klædd í Reebok hlaupaskó.
Um hálsinn á henni hangir skilti?
Ef þú nærð mér þá máttu eiga mig!!!
Eins og elding tekur hann á rás eftir skvísunni.
Hún er auðvitað í fanta formi og þó að hann reyni sitt besta,
nær hann henni ekki.
Næstu 4 daga heldur þessi rútína áfram og hann kemst í betra form.
Á fimmta degi vigtar hann sig og sér til ómældrar gleði hefur hann misst 10 kg.
Hann ákveður að leggja allt í sölurnar og hringir og pantar
misstu 25 kg á 7 dögum!!
Ertu alveg viss?? spyr sölumaðurinn.
Ekki spurning svarar félaginn,
Mér hefur ekki liðið svona vel í mörg ár..
Daginn eftir er barið á dyrnar og þegar að hann opnar stendur,
...RISASTÓR... helmassaður karlmaður fyrir utan
í engu nema bleikum hlaupaskóm.
Um hálsinn á honum hangir skilti... sem á stendur:
Ef ég næ þér, þá er rassinn á þér ...MINN...
...Félaginn missti 32 kg á einni viku...
Kv. Beggan
8.4.2008
Sorry, finn ekki tíma til að blogga...
En að öllu gríni slepptu þá hlýt ég að fara að komast í það að blogga fljótlega, bara búið að vera mjög mikið að gera undanfarið og því hef ég ekki gefið mér tíma í að sinna síðunni minni sem skyldi.
Beggan

