Blogg
28.7.2008
Almost 2 years old.
Þetta er líka síðasta
vikan okkar Knúts í sumarfríi og höfum við sko haft það mega gott. Hann er búinn
að fá mikla og góða þjálfun í íslenskunni, þó að sum orð séu nú ennþá
auðveldari að segja á dönsku. T.d. er ein setning mjög mikið notuð en það er "laver
du pabbi?" og svo þegar hann vill vita hvar einhver er þá segir hann t.d. "Ada
hen?" (Ada = Aníta). En við reynum að sjálfsögðu bara að vera dugleg við að
endurtaka á íslensku, það sem hann segir. Klósettþjálfunin gengur nú alveg
vonum framar og hefur hann átt nokkrar þurrar nætur og hefur meira að segja
vaknað upp á nóttunni til að pissa. Auðvitað koma fyrir slys annað slagið og þá
helst ef það er mikið að gera hjá honum að leika eða hann er upptekinn við að
eltast við það sem systur hans eru að gera.
Stelpurnar eiga
þessa og næstu viku eftir af sínu sumarfríi. Þessar tæpu þrjár vikur á Íslandi
voru æðislegar hjá þeim og komu þær sko rétt rúmlega alsælar heim aftur. Þeim
fannst auðvitað gott að koma heim, en þær myndu sko hiklaust skella sér í aðra
svona ferð fljótlega ef það væri í boði. Ástarþakkir fyrir stelpuskotturnar
okkar, þið á Íslandi!!! Við fórum öll þrjú keyrandi til Köben til að sækja þær,
síðasta þriðjudag og það tók nú dágóðan tíma þar sem við þurftum að taka ansi
mörg pissustopp, fyrir ungan herramann, á leiðinni, svo að það kom sér vel að
hafa farið tímanlega af stað heheh... Svo kíktum við á Gulluna okkar (systurdóttir
MÍN), sem er búsett í stórborginni og hjá henni var "litli" bróðir hennar hann
Smári töffari. Við drógum þau með okkur út til að fá okkur aðeins að borða og
svo ákváðum við bara að dóla okkur heim á leið þar sem við áttum nokkuð langa
leið fyrir höndum, enda tók sú ferð svolítið á þreytta ferðalanga ;o)
Og núna þegar sólin skín svona skemmtilega glatt hjá okkur þá getur maður nú ekki sleppt því að segja frá veðrinu, en það er hreinlega geðveikislega gott veður hjá okkur núna. Í gær var maður hreinlega að farast úr hita, en það má sko ekki kvarta þegar maður fær svona blíðu, bara njóta hennar og vera duglegur að kæla sig niður með vatni.
Svona í tilefni dagsins, þá get ég nú ekki sleppt því að senda vinkonu minni afmæliskveðju, en það er hún Íris Brynja sem á afmæli í dag. Til hamingju með daginn mín kæra!!!
En þangað til
næst vil ég biðja ykkur vel að lifa og fara varlega í að njóta sólargeislanna.
Kv. Begga
P.s. fyrir viku síðan
skellti ég inn myndum, sem voru teknar í maí og júní, inn í myndaalbúmið mitt,
endilega kíkið á þær þið sem hafið ághuga á því.
17.7.2008
Rólegheit í kotinu okkar
Knútur nýtur þess
nú bara að vera einkabarn, en spyr oft um systur sínar enda eru þær nú frekar
stór og mikilvægur hluti í hans lífi. Og núna ef einhver spyr hann hvar þær séu,
þá veit hann allt um það og svarar því til að þær séu á ÍSLANDI J Algjör krúttköggull!!!
Stelpurnar eru búnar
að vera í 9 daga af ferðinni á Seyðisfirði og líkaði það sko heldur betur vel.
Núna eru þær í sveitinni og eiginlega efast ég ekki um að þær njóti lífsins í
botn þar líka. Svo tekur Reykjavíkin við um helgina þar sem þær koma örugglega
til með að hitta fullt af okkar fólki í viðbót. Svo á þriðjudaginn koma þær aftur til Danmerkur og það er nú ekki
laust við að maður sé farinn að hlakka mikið til að fá þær til okkar aftur.
Af garðinum okkar
er nú bara allt fínt að frétta, hann er orðinn ansi grænn og það er sko heldur
betur farið að taka tíma að slá hann. Núna þurfum við að fara að skipuleggja
hann, þ.e. hvar eigumvið að planta ávaxtatrjánum, hvar eiga þvottasnúrurnar að
vera og hvað langar okkur að hafa meira??? En ætli við tökum okkur ekki bara góðan
tíma í að velta þessu fyrir okkur og fáum okkur bara góðan göngutúr með sláttuvélina
annað slagið. Svo eigum við náttúrulega eftir að helluleggja innkeyrsluna, en
það er líka eitt af því sem kemur með tímanum.
Núna ætla ég
demba mér í að gefa gullklumpnum morgunmat fyrir enn einn rólegheitardag í fríinu.
Njótið nú
sumarsins...
Kv. Begga

