Blogg
23.8.2008
ÁFRAM ÍSLAND, en ekki hvað???
Váááá... ágústmánuður er bara fullur af allskonar skemmtilegum veislum. Það
er fullt af fólki sem á afmæli og svo eru haldnar síðbúnar útskriftarveislur og
bara alls konar skemmtilegheit önnur. T.d. handbolti á ólympíuleikunum, sem við
náttúrulega látum ekki framhjá okkur fara. Mér finnst alltaf svo geðveikt gaman
þegar það eru vona stórmót í handbolta og núna er það náttúrulega ennþá
skemmtilegra þar sem íslenska liðið er búið að standa sig þvílíkt vel, ég
hlakka sko bara geðveikt mikið til leiksins á morgun 
Útskriftarveislan sem ég nefndi hérna að ofan var mega skemmtileg, en það var
nefninlega stelpupartý og enduðum við svo bara í bænum, jú jú, meira að segja ég
endaði í bænum fram á miðja nótt. Daginn eftir var svo tekinn rúntur nánast
alla leið til Aarhus í tvölfalt barnaafmæli. Ekki get ég nú sagt að ég hafi
verið vel upplögð í svona rúnt, en að sjálfsögðu naut maður túrsins og
veislunnar þegar maður var búinn að koma sér af stað ;o)
Þessa helgi eru
svo tvær afmælisveislur og önnur þeirra meira að segja tvöföld, svo að það
verður ekki minna fjör en síðustu helgi, verður kannski ekki fram á miðja nótt,
enda kannski ekki alveg það sem maður óskar eftir helgi eftir helgi.
Í gær var
menningarnótt í Sønderborg og þar er alltaf miðæturhlaup (natløb). Við tókum þátt í því, þ.e. við Stebbi og stelpurnar. Við ætluðum nú
aldeilis að vera búin að æfa okkur svolítið fyrir þetta, eitthvað fór það nú
forgörðum hjá okkur, en við vorum búin að ákveða að gera þetta og fórum þetta
bara í rólegheitum (alla vega ég og Aníta
Björk), veit reyndar ekki hversu róleg yfirferðin var hjá Stebba og Perlu Dögg, en mér skilst á Stebba að hún hafi nú verið ansi þrjósk,
þrátt fyrir að vera orðin vel þreytt á köflum og nýbúin á tveggja tíma
sundæfingu. Það er kannski að koma eitthvað keppnisskap í stóru pæjuna mína
eheh... 
Það er lítið um
framkvæmdir hjá okkur núna, Stebbi
er reyndar að fara að sækja einhverjar notaðar hellur í dag, sem við ætlum að
nota á hluta af hellulagningarsvæðinu hjá okkur og þá er spurning hvort hann
verði nokkuð rólegur fyrr hann er búinn að leggja þær. Grasið hjá okkur grær og
grær og við eiginlega höfum ekki undan að slá það, sérstaklega ekki í svona votviðri
eins og hefur verið hjá okkur undanfarið, bæði eykur það sprettuna og svo er
frekar erfitt að slá þegar allt er rennandi blautt.
Hóhóhó... nú var ég
næstum búin að gleyma að segja ykkur frá 2ja ára skoðuninni hjá honum Knúti Heiðberg. Ég fór með hann í
skoðunina í gær og var læknirinn bara
mjög ánægður með peyjann. Hann er nokkuð hár miðað við aldur og svo er hann líka
ca. kílói "of" þungur miðað við hæð, en ekkert til að hafa áhyggjur af á þessum
aldri. Hann var nú ekkert sérstaklega hrifinn af því þegar hún (læknirinn)
vildi fara að kíkja í eyrun og hlusta hann, en hann lét sig nú hafa það. Svo varð
ég nú að koma því að hann væri hættur með bleiju og hún bara gapti á mig og átti
mjög bágt með að trúa því sem ég sagði og sagði mér það að þetta væri nú í
fyrsta skipti sem hún framkvæmdi 2ja ára skoðunina bleijulausa JJJ Enda er það alls ekki algengt að krakkar hætti
með bleiju hérna í DK fyrr en bara 2ja½ -3ja ára. Svo að það var nú aldeilis
stolt mamma sem gekk út með STÓRA
DUGLEGA STRÁKINN sinn úr 2ja ára skoðuninni 
Eigið nú góða
helgi og við hrópum svo bara ÁFRAM ÍSLAND í fyrramálið...
Begga
P.s.
Ætla að henda inn afmælisdagalistanum fyrir ágústmánuð, bara svona að gamni
2. ágúst: Dagný Sylvía Sævarsdóttir (Dagný Lomm í tenglunum mínum)
3. ágúst: Knútur Heiðberg minn og Aldís Sunna Jónsdóttir (systurdóttir Stebba)
6. ágúst: Patrick (þeirra Írisar & Toms)
9. ágúst: Stebbi minn, Örn Heiðberg (stórfrændi minn) og Örvar Ingi (vinur okkar frá Fáskrúðsfirði)
11. ágúst: Hilma Bóel Bergsdóttir (Dóttir Hrafnhildar vinkonu á Akureyri)
13. ágúst: Brúðkaupsafmæli þeirra merkishjóna Fíu & Péturs
16. ágúst: Brúðkaupsafmælið okkar Stebba
19. ágúst: Aldís Anna Sigfúsardóttir (dóttir Dagnýjar & Fúsa) og Ísak Freyr (sonur Hafdísar & Leifs)
21. ágúst: Stefanía Arnardóttir vinkona (kærastan hans Gauta)
23. ágúst: Dagný Eva Snorradóttir (dóttir Dísu & Snorra) og Telma Garðarsdóttir (Garðars & Sólrúnar)
24. ágúst: Leifur Bjarki Björnsson (kærasti Hafdísar) og Kacie Morgan Rounds ("litla" stelpan mín í USA)
27. ágúst: Vigdís Sæunn Ingólfsdóttir (konan hans Snorra)
Ég vona að ég fari rétt með bæði afmælisdaga og nöfn, ef ekki þá bara látið í ykkur heyra og eins ef þið munið eftir fleirum (innan míns "ramma") sem eiga afmæli í ágúst.
3.8.2008
Afmælisdagurinn runninn upp...
ELSKU KNÚTUR HEIÐBERG OKKAR!!!
Afmælismömmukveðja, Begga

