Blogg
28.10.2008
Vestkyst Cup...
Sunddrottningin okkar, hún Perla Dögg, skellti sér á sundmót um helgina og var það nú ekki í minni kantinum (veit samt ekki alveg þátttakendafjöldann). Þetta mót heitir Vestkyst Cup og er haldið i Esbjerg. Hún fór þangað "sjálf" og var alsæl með helgina. Hún tók þátt í 6 einstaklingsgreinum og stóð sig frábærlega vel, hún komst ekki á verðlaunapall, en bætti sína persónulegu tíma í öllum greinunum, sem er náttúrulega meiriháttar.
Við hjónin eyddum helginni í kjallaranum, þar sem húsbóndinn gekk frá rafmagnsköplum og öðru tilheyrandi og frúin málaði fínu grænu veggina hvíta og þvílíkur munur að sjá blessaðan kjallarann núna (",)
Aníta Björk & Knútur Heiðberg eru bara í góðum gír. Knútur Heiðberg farinn að tala alveg heilan helling, auðvitað miserfitt að skilja það sem hann segir og stundum er maður í vafa hvort hann er að tala íslensku eða dönsku hehe. Aníta Björk er alltaf eitthvað að vasast í íþróttum eins og stóra systirin, hún er núna í sundi, ballet og handbolta og hefur bara gaman af. Handboltinn er á laugardagsmorgnum og það þykir nú prinsessunni ekki spennandi tími (ekki það að hún eigi erfitt með að vakna, alltaf vöknuð um kl. 07:00 þessi morgunhani), en henni finnst nú alltaf jafn gaman þegar hún er búin að koma sér af stað.
Ég er loksins búin að fá það í gegn að fá meiri vinnu, svo að núna frá 1. nóvember verður vinnuvikan mín 33 tímar í stað 25 tímanna sem ég vinn núna. Við erum að fara að taka í notkun nýtt teikniforrit, svo að það eru námskeið framundan og miklir "fikta sig áfram" tímar framundan.
Í kvöld er svo körfubolti hjá mér og hinum íslensku skvísunum í Sønderborg og það verður sko gaman, alltaf svo gaman hjá okkur í boltanum.
Og þá víst best að fara að huga að matargerðinni, svo að maður verði ekki nýbúinn að belgja sig út þegar maður fer í spriklið.
Bið að heilsa ykkur í bili...
Kv. Begga
9.10.2008
Stórir titlar í vændum og kvennadagurinn góði
Jæja, nú er komið að því að segja ykkur frá væntanlegum nýjum titlum, sem við Stebbi fáum í byrjun árs 2009. Við eigum jú skriflega og líffræðilega 3 börn, sem þið svo sem vitið nú alveg. En málið er að við "eigum" nú eina stóra stelpu í viðbót sem bjó hjá okkur, hérna í DK, veturinn 2003-2004 og höfðum við nú haft þó nokkur afskipti af henni fyrir þann tíma líka. Þið sem ekki enn eruð búin að átta ykkur á því um hvern ég er að tala, þá er þetta hún Eygló Rún pæja. Hún hringdi í okkur hérna síðla sumars og tilkynnti okkur það að við værum nú eiginlega að verða AFI & AMMA, jább, ekki amalegir titlar það handa okkur á "unga aldri" ;o) En það er áætlað að við getum tekið þessa titla í notkun 1. febrúar, samkvæmt síðasta sónarúrskurði. Mikið held ég að það verði nú erfitt að vera svona "langt" í burtu þegar þar að kemur :-S En fáum við þá ekki bara að upplifa það sem við höfum lagt á ömmur og afa okkar barna, með því að flytja til útlanda??? (What goes around, comes around!!!) Við fáum að fylgjast með framvindu alls ferlisins á veraldarvefnum, svo að við missum nú ekkert af alveg öllu.
heheh... Eygló Rún, heldurðu að bumban þín verði einhvern tímann svona stór???
Þetta er photoshop mynd sem ég gerði "óvart" veturinn sem hún bjó hjá okkur.
Og okkur fannst hún geðveikt fyndin, sem hún er reyndar þegar maður tekur það með að hún er nú ekki einu sinni fermd þarna.
Annars erum við nú bara í góðum gír hérna. Pabbi & Lilja eru komin og farin og það var alveg frábært að fá þau. Við vorum þó nokkuð hjá þeim í sumarbústaðnum og þar var spilað á spil og svo lékum við krikket úti í garði, sem allir höfðu gaman af. Við fórum tvisvar sinnum í keilu, einu sinni út að borða og svo var bara haft það huggulegt inn á milli.
Síðasta laugardag var svo hinn árlegi kvennadagur íslendingafélagsins okkar. Við mættum galvaskar á Loftið kl. 10:00 og þar var tekið á móti okkur með bros á vör (eiginlega glotti bara, enda vissu þær hvað við ættum í vændum). Nú svo var okkur skipt í lið og okkur sagt að við ættum að fara í "Amasing Race". Í þessum leik voru 4 stöðvar, okkar fyrsta var fyrir framan Føtex (stór verslun á enda göngugötu bæjarins og þetta var rétt fyrir hádegi á laugardegi og það voru haustmarkaðsdagar í gangi, sem sagt mikið af fólki í bænum), en þar áttum við að pumpa lofti í blöðrur með svona vindsængurpumpum (ekki rafmangs) en við máttum ekki nota hendur eða fætur, heldur áttum við að nota rassinn og það átti að pumpa þangað til blöðrurnar myndu springa. Ég get alveg sagt ykkur það að það hefur nú ekki verið leiðinlegt að vera á röltinu þarna um þetta leiti, því að þetta hlýtur að hafa verið afar fyndin sjón, ehehe... Á næstu stöð áttu svo tvær úr hópnum að borða 3 negrakossa (litla) og drekka eina dós af diet kóki með (jakk...), síðan hlupum við að næstu stöð þar sem við þurftum að taka einn Tópas sjúss og syngja Gamla Nóa. Á síðustu stöðinni áttum við að sækja bangsa sem var í miðjum brunni á ráðhústorginu. Eftir síðustu stöð áttum við svo að taka lokasprett niður að höfn. Þessar stöðvar voru nú kannski í sjálfu sér ekkert sérstaklega erfiðar (fyrir utan blöðrudæmið), en stöðvarnar voru við sitthvorn endan á göngugötunni og við þurftum að hlaupa göngugötuna fram og til baka í mannmergðinni og það var það sem gerði þetta frekar erfitt. En til allrar hamingju þá varð mitt lið Amasing race winner í ár og það verður nú að segjast eins og er að það var nú frekar ljúft að landa þeim sigri svona í byrjun dags. Svo fórum við aftur á Loftið góða og fengum okkur smá að borða og svo var farið um borð í rútu eina, þar sem tíminn var notaður í að drekka smá og farið í nafnaleik til að reyna að koma nöfnum á öll þessi andlit (það var slatti að nýjum konum og líka aðkomu konum). Þegar rútan svo stoppaði kom í ljós að við vorum að fara í Paintball í 2 tíma og það var bara geggjað gaman, allar í þvílíkum vígahug að það var bara yndislegt. Ég var með þvílíkum keppnismanneskjum í liði svo að við komumst nú ekki hjá því að vinna alla 3 leikina sem farið var í og ég held að ég geti alveg sagt að það hafi allar, alla vega flest allar, veri með harðsperrur daginn eftir og jafnvel nokkrum dögum seinna. Eftir að hafa fengið útrás þarna var haldið til bæjar aftur og farið í góða sturtu og smá "sjæningu" og svo var borðað, mikið var nú gott að fá þetta gríska hlaðborð eftir öll herlegheit dagsins. Ekki var nú allt "action" búið enn, því að eftir matinn, þegar allir voru farnir að slaka vel á eftir matinn og bara komnir í kjafta- og djammgírinn þá var komið að því að læra hipphopp (púff...). Og það er nú ekki alveg það auðveldasta fyrir konur á öllum aldri og í misháum hælaskóm :-P ég hefði nú alveg viljað prófa þetta hipp hopp undir öðrum kringumstæðum, því að ég held að það sé geðveikt skemmtilegt þó að það sé örugglega alveg hrikalega erfitt líka. Ég var svo komin ansi snemma heim, alla vega það snemma að skvísurnar mínar voru vakandi og þeirra vinkonur, en þá gat ég bara skemmt þeim með því að sýna þeim hvað ég lærði mikið hipp hopp stuttu áður LOL og þeim þótti það sko ekki leiðinlegt skal ég segja ykkur.
Þetta er orðinn ansi langur pistill hjá mér, vona að þið hafið ekki alveg verið búin að gefast upp á mér, en mér fannst bara afmælsidagurinn hennar Siggu systir bara svoooo merkilegur að hann yrði að fá sinn sess í svona laaaangan tíma :-S
Njótið nú haustsins, því að áður en þið vitið af þá eru komin jól og ískaldur vetur
Begga

