Blogg

13.12.2008

13. desember

    Af hverju lætur maður alltaf allt bíða fram á síðustu stundu fyrir jólin??? Jólapakkarnir ættu náttúrulega að vera löngu farnir til Íslands, en eru ekki einu sinni komnir í hús ennþá emoticon En það verður vonandi smá tími til að redda því annað hvort í dag eða á morgun. Við mæðgur, allar þrjár, erum reyndar að fara á sundmót í dag, en það er innanfélagsmót hjá sundfélaginu okkar. Ég er reyndar ekki að fara að keppa, en ég verð tímavörður og það í fyrsta skipti á alvöru móti eftir að ég skellti mér á námskeið í nóvember. Maður getur víst alveg eins nýtt tímann í að gera eitthvað gagnlegt þegar maður þarf að vera heilan dag í sundhöllum landsins emoticon Aníta Björk er að fara að keppa í fyrsta skipti og syndir eitt sund í dag, 100 m. bringu og Perla Dögg syndir held ég þrjú 100 m. sund, skrið, bringu og bak. Þessu móti er dreift á 4 daga og á fimmtudaginn byrjaði það með 400 m. skriðsundi og þar gekk Perlu Dögg bara nokkuð vel, bætti tímann sinn töluvert. Síðan verða 200 m. sundin synt sunnudaginn 21. desember og 50 m. sundin verða synt 22. desember (heldur þetta sundfélag að maður sé bara tilbúin með allt fyrir jólin eða hvað? emoticon ) Perla Dögg tekur þátt í næstum öllum þessum sundum, en Aníta Björk syndir bara þetta 100 m sund í dag og svo þrjú 50 m. sund 22. des., sem er nú kannski ekkert BARA fyrir hana, þar sem þetta er fyrsta sinn sem hún keppir á sundmóti.
     Desember í DK = jólahlaðborð/julefrokost út í eitt. Um síðustu helgi var julefrokost hjá mér með vinnunni minni og það varð að þvílíku skralli. Við byrjuðum á því að mæta í keilu kl. 15 og spiluðum í tvo tíma. Það var náttúrulega geðveikt gaman, enda hef ég aldrei á ævinni sýnt aðra eins takta í þessu sporti og náði mínu besta skori ever. Auðvitað sveiflaðist þetta svolítið frá leik til leiks, en ég náði tveimur hrikalega góðum leikjum og var mjög montin með það. Nú svo var farið heim til að hafa sig aðeins til og svo bara í matinn og djammið. Já, believe it or not, það var sko djammað langt fram á nótt og laugardagurinn gaf það sko vel til kynna að áfengismagnið sem innbyrgt var hefði nú kannski alveg mátt vera aðeins minna. En það er nú svo sem ekki eins og maður geri þetta um hverja helgi emoticon Versta við þetta var að við vorum svo að fara á julefrokost hjá stjórn íslendingafélagsins á laugardagskvöldið og ég var sú fyrsta til að yfirgefa samkvæmið sökum þreytu og hrolls (getur verið að það kallist þynnka?)
     Svo í gærkvöldi skellti Stebbi sér af stað með sínum vinnufélögum, en hann var nú ekki alveg eins ýktur í djamminu og frúin og var nú bara kominn nokkuð snemma heim.
Í kvöld er svo bara enginn julefrokost hjá okkur, en vinir okkar ætla að skella sér og þá fáum við stórvinkonu okkar í heimsókn til okkar og það þykir okkur nú ekki leiðinlegt.
     Á morgun sækjum við okkur svo jólatré ásamt fríðu föruneyti annarra félagsmeðlima í íslendingafélaginu okkar. Það er alltaf ákveðin stemning að fara að sækja jólatréð, labba um og skoða og spá og spekulera hvaða tré sé nú fallegast og í "réttri" stærð.
Annars erum við nú bara í rólegheitum, ekkert verið að stressa sig um of á þessum jólum, en það fer nú að koma smá stress í mann ef maður fer ekki að ná að gera það klárt sem á að fara til Íslands.
     En að lokum þá verð ég nú að senda tveimur merkiskonum smá afmæliskveðjur í tilefni þess að ég sé að blogga á þeirra degi. En í dag er hún svilkona mín,hún Jónína, á Súluvöllum að fagna stórafmæli og vona ég svo sannarlega að hún eigi góðan dag. Og svo er það hún Gunna mín sem líka bætir á sig einu aldursári í dag og fær hún að sjálfsögðu kærar afmæliskveðjur líka.
     að demba mér í að gera eitthvað annað en að hanga í tölvunni, kannski ég bara skelli mér í jólagjafaleiðangur.
     Knús á ykkur öll!!!
     Beggan

Skrifað 13.12.2008 kl. 6:55 af Berglindi Knútsdóttur

Bein slóð á færslu

5 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 35
Gestir í dag: 8
Flettingar í gær: 21
Gestir í gær: 5
Samtals flettingar: 58268
Samtals gestir: 21949
Tölur uppfærðar: 20.3.2010 22:40:57